24. mars 2007 klukkan 21:09
Ég get nú sagt það að ég á skilið að vera kölluð latasti bloggarinn á íslandi, ÉG HEITI ÞÓRDÍS OG ER LATUR BLOGGARI. HHheeejjjj ÞÓRDÍS!!!
Hvað get ég sagt annað en að ég er löt. Það er fullt búið að gerast síðan síðast ég bloggaði, hvað annað, það eru margir mánuðir síðan ég bloggaði seinast. Það er búið að vera nokkur djömm, flest edrú en uppá síðkastið hef ég verið drekkandi, kannski ekki svo gott, En gaman!!!!
Ég er búin að ákveða að ég ætla að taka overbyggningen eða bachelorinn hér í Teko thannig að ég þarf að þola þennann æðislega bæ í 1 og hálft ár í viðbót en það er þolanlegt þar sem ég var að pæla að búa í aarhus á meðan. En þar á milli að ég klára hér og ég tek bachelorinn þá verð ég á íslandi, það er sirka 7 mánuðir þannig að það er hreint út sæla!!!!!
Ég kem heim eftir viku í 3 vikur og get ekki beðið. Það er MJÖG mikið áplaninu þannig að það er kominn pöntunatími á stundarsælu með Þórdísi en engar áhyggjur, ég mun reyna að hitta ykkur öll. Hver vill með á bjarkartónleikana??? endilega látið mig vita. Sjáumst fljótt!!!!
Thordis Osk Helgadottir
30. janúar 2007 klukkan 02:57
Lítið skemmtilegt er búið að gerast síðustu daga. Skólinn tekur 98% af tímanum mínum og þá hef ég alveg heil 2% í svefn,mat og slappi af. Plús það að ég þarf í rauninni að ákveða hvað ég ætla að gera í skólamálum, plús að mig langar að reyna að selja eina hönnunn sem mér finnst spennandi, og svo er það allt hitt sem þarf bráðum að fara að hugsa um, eins og fluttiningar og allt sem því fylgir og þúsund aðrir hlutir sem ég nenni ekki að nefna.
Kaios!!! Er orðið!! en þetta er bara leiðinleg umræða. Tölum um eitthvað annað.
Helgin!!
Á föstudaginn fór ég og Malaika á myndina Blood Diamonds og mæli ég eindregið með henni. Góður söguþráður, segir mjög vel frá,frábær aðalleikari, bauð uppá nokkur tár og Leonardo Decaprio geislaði af sér furðulega miklum kynþokka. Eftir myndina settumst við á Le Petit, litla shubby studentabarinn sem veitir uppá ódýrann bjór í skítugu glasi og reykmakkað adrúmsloft þar sem við töluðum um allt til kl:3.30. Ótrúlega huggó!!
Á laugardaginn hélt Eva spilakvöld þar sem hún hafði geðveikt cozy með brie, kex og rauðvín. Ótrúlega huggó líka!!! Við spiluðum æðislegu jólagjöfina, Herning spilið!!! Þetta er fyndnasta spil í heimi. Þetta er alveg einsog matador en bara gert um herning. En aðeins öðruvísi. Einsog það er ekkert fangelsi, í staðinn fyrir götur eru búðir og aukaspjöldin sem maður verður að draga fylgir alltaf lítil saga. Ótrúlega skemmtilegt. Ég verð nú eiginlega að viðurkenna það að ég er meistarinn í herning spilinu og er hreikin af því.
Þó að það þýði að ég sé alveg vonlaus í ástum þá hef ég þó Herning spilið
, nei segji svona
Þetta var voða gaman!!
Skólinn!!
Nýjasta verkefnið okkar er stóll sem hægt er að leggjast í, ég veit eiginlega ekki hvað það er kallað á ísl en á döns. er það lænestol!!.
Ef það gengur vel þá hendi ég honum kannski inná myspace!!
Þreytta stelpan segir bless
Thordis Osk Helgadottir
28. janúar 2007 klukkan 22:50
Bloggið mitt hefur setið á hakanum nú í smá tíma. Ástæðan er sú að ég var að fá mér myspace og verður maður gjörsamlega húkked á því. Ég hef samt ákveðið að hafa bloggið áfram þótt að svona hafi staðið á. Myspacið verður aðeins fyrir verkin mín og hvað ég hef verið að gera í skólanum og bloggið er fyrir allt annð. En endilega kíkið á myspacið, en ef þið viljið commenta þá verðið þið bara gjöra svo vel að fá ykkur myspace... hvað segiru þurý???
Thordis Osk Helgadottir
27. janúar 2007 klukkan 15:35
Þurý sendi mér e-mailum daginn og ég get ekki annað en sett það hér inn. Þetta er alveg æðislegt því að ég man að ég gerði, hugsaði langaði i og fannst cool á þessum lista. Æðislegar minningar
Þú ert 90´s kid ef þú:
Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]
Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...
Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu
Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...
Þegar lögga og bófi var daglegt brauð
Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir
Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...
Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..
Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir
Þú horfðir alltaf á America 's Funniest home videos
Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk
Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl
Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...
Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..
Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara
Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...
Þú áttir tölvugæludýr
...eða Furbie
Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið
Og Windows '95 var best
Michael Jordan var aðal hetjan..
Kærleiksbirnirnir
Þú safnaðir lukkutröllum
Og áttir vasadiskó
Þú kannt Macarena dansinn utanað
Þú veist af hverju 23 er kúl tala
Áður en að Myspace varð vinsælt,
Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..
Áður en ipod kom til sögunnar
Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,
Þegar buffaló skór voru málið
Og þú leigðir spólur, ekki dvd,
Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti
Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu
Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast
Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!
Thordis Osk Helgadottir
19. janúar 2007 klukkan 03:31
Jæja elskurnar, þarna var ég sannalega bitin í rassinn.
Ég hefði nú átt að láta það vera að kvarta undan veðrinu í seinustu færslu, því hvað sem á líður þá geta hlutirnir oftast versnað. Jújú eftir langan skóladag, þá á ég við 8.00- 18.30 dag. Var ég að vinna að verkefninu mínu þar sem skólinn byrjar að kólna frekar hratt. Þegar ég lýt út um gluggann þá er byrjað að snjóa og hefur ekki stoppað. Note to self... engir kjólar eða pils á djamminu á morgun.

Robin á von á 7 vinum í heimsókn og er að reyna að safna saman dínum og sængum fyrir mannskapinn. Það verður ótrúlega fyndið að horfa á hann á morgun að slæpast með allt þetta dót, fram og til baka.
Planið á morgun er að klára verkefnið og fara í bæinn (versla inn fyrir kvöldið, svona dót til að fegra "Girls you know what I mean". Við ætlum að hittast nokkrir krakkar , borða saman og síðan ætlar fólkið að byrja að drekka. Þar sem ég verð endrú (leiðinlega ég

), verð ég að koma mér inní djammstemmninguna frá gamla gauk. Ef þið vitið ekki hvað ég á við þá er það...edrú, dansandi uppá borðum og djamma til 8 um morguninn með skemmtilegu fólki. Ohhh Gamli gaukur, eða eiginlega gamli, gamli, gamli gaukur.
Sjáum hvernig fer!!!!
Thordis Osk Helgadottir
18. janúar 2007 klukkan 11:55
Einsog flest allir íslenskir danabúar þá er veðurfarið að drepa okkur hér. Það er janúar mánuður, grasið grænt en rigning og rok mest allann tímann.... æðislegt. Aðstæður ekki góðan. Ég sit hér dauðþreytt og andvaka bíðandi eftir að tíminn líður þannig að ég geti farið í skólann. Jájá... ef þið voruð að enda við að kíkja á klukkuna, þá er hún 06.39 þegar ég skrifa þetta. Frekar slæmt!!!
Ástæðan fyrir þessari andvöku er að í þessu æðiskega veðri hér í dan þá bættist við að það komu þrumur og eldingar í nótt. Hver getur sofið í þessum látum!!!!!!!!! Ég er ekki sátt. Hvert fer maður til að kvarta??????
Annars ekkert nýtt að frétta hjá mér. Ég er á fullu að vinna verkefnið mitt sem heitir workstation. Mjög skemmtilegt verkefni þar sem ég er líka mjög sátt við hönnunina mína. Það fyndna við þetta sem ég hannaði er að ég hélt að ég væri að gera hönnun með efnum sem væri ekki búið að finna uppá, en eftir mikla rannsókn þá sé ég að ég sé nú bara í nútimanum. Einsog stóll sem aðlagast að líkamanum þegar þú sest í hann, það eru nú bara Tempur dínur sem gera það, eða Lazer takkaborð, engir fyrirferðamiklir takkar, nei nei það er bara til. Maður heldur að maður sé svo upprunalegur en svo er víst ekki. Jæja það er bráðum dagur fólk og ég ætla að fara á fætur.
heyrumst seinna
Thordis Osk Helgadottir
16. janúar 2007 klukkan 00:06
Ég var í skólanum í dag að sökkva mér í verkefni dagsins sem saman stóð af Nanoteknology. Þ.e.a.s Efnum sem eiga eftir að koma fram í framtíðinni sem getur gjörsamlega breytt framtíðinni í hönnun.
Hugsið ykkur hvað það gæti verið geðveikt ef að það finnst plast eða gler efni sem heldur í sér hita í einhvern tíma þannig að þú þurfir kannski aldrei að skafa af gluggunum á bílnum þínum eða það kemur aldrei móða. Og hvað ef það væri hægt að geyma hita í einhverju efni, hvað það væri hægt að nýta það í annað. Ótrúlegir möguleikar.
Við áttum sem sagt að finna nýjar hugmyndir um vörur sem hægt væri að breyta og þróa með Nanotækni.
Það er svo margt sem hægt er að gera einsog að hafa baðkar sem hægt er að breyta formi þannig að það komist að mismunandi hornum, eða beygjanlegann sjónvarpskerm sem hægt er að horfa á frá báðum hliðum, rúlla honum síðan saman og setja hann í hylluna.
Það sem mér fannst vera svoldið skemmtileg pæling var að, af hverju hefur fólk ekki pælt í því að búa til einhverja tölvu sem sprautar í manni lyfin eða dregur blóð frá manni?. Af hverju eru hjúkkur enn að pína fólk með að nota hendina sem nálapúða ogveita þeim ótrúlega falleg blá merki. Það getur ekki verið erfitt að setja litinn skynjara inn í tækið sem greinir æðina. Eru æðar ekki heitari en hinir vefirnir! Þyrfti ekki að vera bara litill hitaskynjari sem finnur æðina, við erum nú búin að finna litlar ryksugur sem skynja hvar ryk er, er ekki hægt að nota þá tækni í eitthvað sem linar kvöl okkar í hverji læknisferð?
En þetta var nú aðeins pælingar. Eitt sem gott er að pæla líka í er að hvort að nanotækni sé eitthvað sem er gott fyrir hönnunarheiminn!!??!! Endar ekki bara með að allir hlutir verða sjálf breytanlegir á endanum, þannig að eigendur geta bara forritað ískáp til að breyta sér í sjónvarp og hönnunarhlutinn verður bara óþarfur?? Hver veit, en án efa þá mun nanotækni veita okkur hluti sem núna þykja kannski fáránlegir en í framtíðinni verða nauðsynlegir.
Thordis Osk Helgadottir
14. janúar 2007 klukkan 01:55
Jæja elskurnar mínar!
Ég hef komist að því að ég er bara komin með ógeð af gömlu síðunni minni, þess vegna nennti ég ekkert ad blogga. En núna eru breyttir tímar.
Þá er ég komin aftur til dan í vindinn og ógeðslega veðrið.
Jólin voru yndisleg, ég fékk margar ótrúlega fallegar gjafir þar á meðal ótrúlega góð ilmvötn, hnífapör sem ég óskaði mér, föt, lopapeysu, skó, og eina gjöf sem var pínu svekkjandi. Jónína elsku systir mín vildi vera góð við einhleypu systur sína með að gefa henni uppblásinn eiginmann. Ég hafði ekkert á móti þessari gjöf fyrr en ég blæs manninn minn upp og sé hvernig hann lýtur út. Maðurinn er 60 cm hár, rauðhærður, óheppilega ófríður, loðinn og hafði í rauninni engin tól þarna niðri. Ég get nú ekki sagt að hann heillaði mig uppúr skónnum. En þetta var mjög fyndið.
Ég og Amalía ferðuðumst saman heim og gekk það bara mjög vel. Það er náttúrulega alltaf eitthvað sem gerir ferðina aðeins lengri einsog sitja hjá frekar feitri manneskju án allra fordóma þá fær maður minna handarpláss fyrir sjálfan sig. Flugvélin bauð tvisvar uppá bíomynd en hætti að sýna báðar í miðju kafi. Þegar komið var á völlinn, höfðum við 2 mín til að hlaupa í lestina, rétt náðum henni en settumst kófsveittar inní vagn sem var fullur af Múslimafólki sem talaði ofaní hvort annað. Það reyndar pirraði okkur ekkert þar sem við vorum niðursokknar í stelpumyndum.
Við eyddum nokkrum dögum heima hjá Jónínu og Óskari. Það var alveg yndislegt. Þar fékk ég að knúsa og kyssa Petrínu þangað til ég fór í ógeðisbæinn aftur.
Ég mætti gær í skólann og demdi mér beint í verkefnin sem biðu mín. Fyrsta verkefnið okkar á þessari önn er að hanna workstation. Sem sagt vinnuaðstöðu þar sem maður vinnur í tölvu. Þetta er aðeins öðruvísi verkefni og held ég pínku erfitt.
Ég ætla að láta þetta duga í bili!
Commentið nú fólk!
Thordis Osk Helgadottir